Kallinn er vaknaður er ekki eins ferskur og ég óskaði mér. Gunni frændi ekki búin að commenta á póstinn, Diddi lætur ekki sjá sig, Viggi farinn í fýlu, Gummi Mete er veikur. Enginn að fylgjast með Kári var fyrsti maðurinn að commenta á nýju síðunni minni það er að segja nýja lúkkinu. Fyrirliði Breiðabliks kann gott að meta enda er hann smooth báðum megin.
Mér langar aðeins að tala um Hauk Ólafsson a.k.a H-MAN þessi maður er fáránlega svalur gaur hann rúllar alltaf með í vörinni með brett upp ermarnar og sýnir half-sleevið sitt. Ég kann að meta þennan mann því að hann segir þér hvað klukkan er þegar þú ert að ibba gogg það er bara svoleiðis. Einu sinni hitti ég H-man á vegamótum og hann sagði við mig "bomba ég lifi fyrir momentið" ég sagði já ég veit það H-Man þú ert einn af fáum mönnum þarna í Hafnafirði sem veit um hvað lífið snýst.

Alltaf þegar maður kemur á æfingu þá er H-Man fyrsti maðurinn til að pounda kallinn og segir hvað er uppi í lífinu. Ég kann að meta H-Man hann er maður dagsins.
Hér er gamalt viðtal við minn mann H-MAN
U-17 í fótbolta: Jafntefli við Rússa og íslensku strákarnir áfram
„Leikurinn var nú ekkert spes knattspyrnulega séð. Við áttum betri færi í fyrri hálfleik en síðan missa þeir mann út af og eftir það var þetta mikill barningur. Við vorum nær sigri en það hafðist ekki“, sagði Ísfirðingurinn og Bolvíkingurinn Haukur Ólafsson um leik Rússa og Íslendinga í undankeppni EM undir 17 ára sem fram fór í Litháen í gær. Leiknum lauk með markalausu jafntefli. Þetta var síðasti leikur Íslands í undankeppninni og jafnframt úrslitaleikur um sigur í riðlinum. Lið Rússa og Íslendinga hlutu bæði sjö stig eftir tvo sigra og eitt jafntefli en Íslendingar urðu í öðru sæti með lakara markahlutfall.
Ísfirsku strákarnir Matthías Vilhjálmsson, Arnaldur Stefánsson og Haukur Ólafsson voru í byrjunarliðinu en Birkir Halldór Sverrisson var á varamannabekknum. Matthías fékk áminningu í leiknum og var skömmu síðar skipt út af. Íslendingar eru komnir áfram í milliriðla keppninnar sem leiknir verða fyrir lok mars á næsta ári.
„Við erum mjög ánægðir með að vera komnir áfram í keppninni og bíðum spenntir eftir næsta verkefni“, sagði Haukur í samtali við bb.is í morgun. Hann var þá í rútu á leið á flugvöllinn í Litháen en drengirnir koma heim í kvöld. Haukur segist mjög ánægður með umgjörð keppninnar í Litháen og þar hafi allt gengið vel. Hér heima spilar Haukur með FH og er ánægður í þeirra herbúðum. „Það er mjög vel staðið að málum þar og bjart framundan og því ætla ég mér að vera þar áfram“, sagði Haukur um næstu framtíðaráform.